Menu Content/Inhalt
Heim arrow Félagssamţykktir
Félagssamţykktir fyrir samtök dragnótamanna.

Félagssamþykktir fyrir samtök dragnótamanna.   

 

 

Félagssamþykktir fyrir samtök dragnótamanna.

 

1.gr. Heiti félagsins er Samtök dragnótamanna. Heimili þess og varnarþing er i Reykjavík. Samþykkt á stofnfundi 4.febrúar 1995.

2.gr. Tilgangur félagsins er að efla samheldni með íslenskum dragnótaútgerðarmönnum, gæta hagsmuna þeirra í hvívetna.
Að stuðla að vísindalegum rannsóknum áhrifa dragnótaveiða á lífríkið í samvinnu með fiskifræðingum sem og öðrum áhugamönnum um vistkerfið.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að skapa jákvæð tengsl milli annarra útgerðarþátta, að efna til almennra funda um dragnótaveiðar og tengd málefni. Félagið starfi í fullri samvinnu með hagsmunasamtökum s.s. Landsambandi íslenskra útvegsmanna og Fiskifélagi Íslands.
Það mun upplýsa ráðamenn og almenning um gagnsemi og hagkvæmni veiðanna.
Að efla persónuleg kynni dragnótamanna m.a. með því að stofna til mannfagnaða.

3.gr. Félagsmenn geta allir íslenskir útgerðarmenn orðið sem stunda eða hafa stundað dragnótaveiðar.
Útgerðarmaður sem tilkynnir stjórn félagsins um að hann óski að gerast félagsmaður nýtur hann þá þeirra félagsréttinda e rstjórnin hefur gengið úr skugga um að hann fullnægi skilyrðum til inngöngu í félagið.

4. gr. Komi til þess að félagi ákveði að segja sig úr félaginu, skal úrsögnin vera skrifleg og miðast við áramót með minnst þriggja mánaða fyrirvara. Stjórn félagsins getur vikið mönnum úr félaginu ef henni þyki efni standa til en þeir geta borið mál sitt undir almennan félagsfund.

5.gr. Árgjald félagsmanna skal vera kr.2.500 á hvern félagsmann. Lágmarksgjald á bát skal kr.10.000, síðan bætast við kr. 2.000 fyrir hverjar 10 BRL. Umfram 20 BRL. Þó aldrei hærra en kr. 20.000 fyrir hvern bát. Reikningsár félagsins skal vera 1. október til  30.september.

6.gr. Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda í október mánuði ár hvert. Til hans skal boðað með auglýsingu í blöðum eða á annan tryggilegan hátt og með viku fyrirvara hið skemmsta og er hann þá lögmætur.  Afl atkvæða ræður úrslitum mála. Hver félagsmaður hefur 1 atkvæði og að auki 1 atkvæði fyrir hvern bát sem að jafnaði stundar dragnótaveiðar.

 


7.gr. Þessi mál skulu tekin til meðferðar á aðalfundi:
  1. Stjórn félagsins gerir grein fyrir störfum félagsins.
  2. Félagsstjórn leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.
  3. Ákvörðun félagsgjalda komandi árs.
  4. Kosning stjórnar og varastjórnar.
  5. Kosning tveggja endurskoðenda
  6. Önnur mál.

8.gr. Halda skal sérstaka gjörðabók fyrir félagið og stjórn þess. Skal þar skrá á stuttu máli allt það er gerist á fundum félagsins. Fundargerð skal síðan undirrituð af fundarstjóra og ritara.

9.gr. Samþykktum félagsins má aðeins breyta á aðalfundi enda sé þess getið í fundarboði að tillögur til breytinga á samþykktum verði lagðar fram á fundinum. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins öðlast því aðeins gildi að þær séu samþykktar með helmingi gildra atkvæða í félaginu.
  Nú sækir ekki tilskilinn hluti félagsmanna aðalfund, skal þá efna til framhaldsaðalfundar. Er sá fundur lögmætur án tillits til fundarsóknar.

10.gr. Stjórn félagsins skal skipuð 5 manns og 5 til vara og skulu þeir kosnir á aðalfundi til 1 árs í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Rétt til setu aðalfundar hafa allir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld.
 
11.gr. Stjórn félagsins ræður málefnum félagsins með þeim takmörkunum er lög þessi setja. Hún tekur nánari ákvarðanir um starfsemi félagsins og ber ábyrgð á fjárreiðum þess.  Hún skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess . Ef þurfa þykir getur stjórnin ráðið framkvæmdastjóra, timabundið eða til frambúðar, sem hefur á hendi allar daglegar framkvæmdir samtakanna, innheimtu félagsgjalda, allt reikningshald, undirbúning og afgreiðslu mála, eftir nánara fyrirlagi stjórnar og í samráði við hana.  Stjórnin ákveður laun framkvæmdastjóra.

12.gr. Stjórnarfund skal boða með tryggilegum hætti og með 2 daga fyrirvara, ef unnt er. Stjórnarfundur ályktunarfær ef 3 aðalstjórnarmenn og einn varastjórnarmaður sækja fund hið fæsta. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundi.
Nú eru atkvæði jöfn þá ræður atkvæði formanns (varaformanns) úrslitum.

13.gr.  Nú kemur fram tillaga um það að félaginu skuli slitið og skal hún þá sæta sömu meðferð sem tillaga til lagabreytingar,  sbr. 9.gr.

     Samþykktir þessar öðlast þegar gildi.

             Reykjavík, 4.febrúar 1995.

 

 

 

 

Fréttaskot

Aðalfundur Samtaka dragnótamanna 29/11/08 haldinn að Hótel Park-inn Reykjavík