Menu Content/Inhalt
Heim arrow Um félagiđ
Um félagiđ

Samtök Dragnótamanna

 
 
Í janúar mánuði 1995 hittust nokkrir útgerðarmenn á Hótel Sögu. Tilgangurinn var að ræða stofnun félags til að standa vörð um dragnótaveiðar. Undanfarin misseri hafði verið sótt mjög að þessari veiðiaðferð og voru m.a. upp háværar raddir um að banna veiðarnar.  Mönnum sem stunduðu þessa útgerð þótti gagnrýni á þessa veiðiaðferð vera órökstudd, illa ígrunduð og oft á tíðum bera með sér rangfærslur og kreddur ásamt almennu þekkingarleysi á dragnótaveiðum og jafnvel veiðarfærinu sem slíku.  Ljóst þótti, að verja þyrfti þessar veiðar sem oftar en ekki byggðust á flatfiskveiðum og sköpuðu talsverða vinnu á sjó og landi á ákveðnum svæðum á landinu.  

Valin var undirbúningsnefnd sem skipuð var eftirtöldum mönnum: Einari Sigurðssyni Þorlákshöfn, Ólafi Eggertssyni Reykjavík, Óttari Guðlaugssyni Ólafsvík, Sigurði Jónssyni Hellissandi og Friðriki G. Halldórssyni Reykjavík.

Nefndin sendi bréf til allra sem fengið höfðu leyfi til dragnótaveiða árið 1994. Stofnfundur var síðan haldinn á hótel Sögu laugardaginn 4 febrúar 1995. Á stofnfundinn mættu 32 aðilar og fleiri tilkynntu þátttöku. Samþykktar voru félagasamþykktir og skipun stjórnar.

Tilgangur félagsins var ákveðinn í megindráttum að kynna ráðamönnum veiðarnar og eyða þeim dylgjum og aðför að þessari veiðiaðferð, sem voru í gangi. Samþykkt var að félagið tæki ekki afstöðu til svæðisskiptinga en stæði vörð um áframhaldandi veiðar allt í kringum landið.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að efla samheldni með íslenskum dragnótaútgerðarmönnum og gæta hagsmuna þeirra. Stuðla að vísindalegum rannsóknum á áhrifum dragnótaveiða á lífríkið í samvinnu við starfsmenn Hafrannsóknarstofnunnar sem og öðrum áhugamönnum um vistkerfið. Efna til funda um veiðarnar og tengd málefni. Starfa með hagsmunasamtökum í sjávarútvegi s.s. LÍÚ og einstökum útvegsmannafélögum um allt land.

 

Fréttaskot

Aðalfundur Samtaka dragnótamanna 29/11/08 haldinn að Hótel Park-inn Reykjavík