| Ráðstefna um dragnótaveiðar |
|
Nú styttist í ráðstefnu um dragnótaveiðar 29. og 30. mai. Þar verða margir spennandi fyrirlestrar, um dragnótaveiðar í Noregi og Skotlandi ásamt tveimur skipstjórum héðan. Tveir netagerðarmenn verða með fyirirlestur um uppsetningu dragnótar. Það verða einnig fyrirlestrar um spil og nema í dragnót til að sjá afstöðu milli klafa og höfuðlínuhæð. Haraldur Einarsson veiðarfærasérfræðingur Hafró verður með fyrirlestur um umkverfisáhrif dragnótar. Guðbergur Rúnarsson verður með fyrirlestur um olíueyðslu og samanburð á milli veiðarfæra og margt fleira. 31. mai er boðið upp á að skoða líkön í tanki fyrir þá sem hafa áhuga.
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar er búinn að bjóða í samsæti kl 1700 fyrri daginn, í bátasafni Gríms í Duus húsum. Stefnt er að því að enda ráðstefnuna í kvöldverði í Bláa Lóninu. Nú styttist í ráðstefnu um dragnótaveiðar 29. og 30. mai. Þar verða margir spennandi fyrirlestrar, um dragnótaveiðar í Noregi og Skotlandi ásamt tveimur skipstjórum héðan. Tveir netagerðarmenn verða með fyirirlestur um uppsetningu dragnótar. Það verða einnig fyrirlestrar um spil og nema í dragnót til að sjá afstöðu milli klafa og höfuðlínuhæð. Haraldur Einarsson veiðarfærasérfræðingur Hafró verður með fyrirlestur um umkverfisáhrif dragnótar. Guðbergur Rúnarsson verður með fyrirlestur um olíueyðslu og samanburð á milli veiðarfæra og margt fleira. 31. mai er boðið upp á að skoða líkön í tanki fyrir þá sem hafa áhuga. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar er búinn að bjóða í samsæti kl 1700 fyrri daginn, í bátasafni Gríms í Duus húsum. Stefnt er að því að enda ráðstefnuna í kvöldverði í Bláa Lóninu. Þegar hafa menn frá Noregi, Skotlandi, Hollandi og Kanada tilkynnt þátttöku. Það er afar mikilvægt fyrir vægi ráðstefnunnar að menn verði duglegir að mæta "skyldu mæting". Skráning er til 1. mai. Þátttökugjald er 10.000,- Sem fer að stórum hluta í að greiða niður kvöldverðinn. Auk þess ætla nokkur fyrirtæki og félög að styrkja ráðstefnuna. Ekki er endanlega búið að negla niður dagskrá, en svona lítur hún út í dag, en líklegt er að hún taki einhverjum breytingum.
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Næsti > |
|---|
