Menu Content/Inhalt
Heim arrow Fréttir arrow Latest arrow Ráðstefna um dragnótaveiðar
Ráðstefna um dragnótaveiðar
Nú styttist í ráðstefnu um dragnótaveiðar 29. og 30. mai.  Þar verða margir spennandi fyrirlestrar, um dragnótaveiðar í Noregi og Skotlandi ásamt tveimur skipstjórum héðan. Tveir netagerðarmenn verða með fyirirlestur um uppsetningu dragnótar. Það verða einnig fyrirlestrar um spil og nema í dragnót til að sjá afstöðu milli klafa og höfuðlínuhæð. Haraldur Einarsson veiðarfærasérfræðingur Hafró verður með fyrirlestur um umkverfisáhrif dragnótar.  Guðbergur Rúnarsson verður með fyrirlestur um olíueyðslu og samanburð á milli veiðarfæra og margt fleira. 31. mai er boðið upp á að skoða líkön í tanki fyrir þá sem hafa áhuga.

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar er búinn að bjóða í samsæti kl 1700 fyrri daginn, í bátasafni Gríms í Duus húsum.  Stefnt er að því að enda ráðstefnuna í kvöldverði í Bláa Lóninu.

Þegar hafa menn frá Noregi, Skotlandi, Hollandi og Kanada tilkynnt þátttöku. Það er afar mikilvægt fyrir vægi ráðstefnunnar að menn verði duglegir að mæta "skyldu mæting". Skráning er til 1. mai. Þátttökugjald er 10.000,-  Sem fer að stórum hluta í að greiða niður kvöldverðinn.  Auk þess ætla nokkur fyrirtæki og félög að styrkja ráðstefnuna.
 
Ekki er endanlega búið að negla niður dagskrá, en svona lítur hún út í dag, en líklegt er að hún taki einhverjum breytingum.
 
Dagskrá alþjóðlegrar dragnótaráðstefnu  í maí 2008, í Keflavík á Íslandi

Dagur 1

29.maí.08

10:00

Setning fundar, Sjávarútvegsráðherra, Einar Guðfinnsson

10:20

Samtök dragnótamanna á Íslandi, Friðrik G. Halldórsson

10:45

Dragnótaveiði og þróun veiðanna, Jón Árnason

11:30

Kaffihlé

11:40

Hönnun og uppsetning dragnóta, Ísfell, Rut Jónsdóttir

12:20

Matarhlé

13:20

Dragnótaveiðar í Noregi, RFG, Per Frøystad og Roy Olsen

14:00

Olíukostnaður við dragnótaveiðar, Samtök fiskvinnslustöðva, Guðbergur Rúnarsson

14:30

Dragnótaspil, Ósey, Daníel Sigurðsson

14:50

Kaffihlé

15:00

Dragnótaveiðar í Hollandi, Anton Dekker.

15:40

Íhlutir í dragnætur, Ísfell, Hólmsteinn Björnsson

15:55

Net og tóg í dragnætur, Olís, Eiríkur H. Sigurgeirsson

16:10

Dragnótatóg, Selstad, Ottar Færestrand

17:00

Samsæti í boði Reykjanesbæjar í bátasafni Gríms í Duus húsum

Dagur 2

30.maí.08

10:00

Rafeindatæki við dragnótaveiðar, Marport, Óskar Axelsson

10:25

Kvikmyndir af dragnótum og frá veiðum í dragnót,  ISCFT, Lárus Pálmason

11:10

Kaffihlé

11:20

Dragnótaveiðar veiðar og vinnsla, Auðbjörg hf, Örn Einarsson

12:00

Matarhlé

13:00

Hönnun og uppsetning dragnóta, Netagerð Aðalsteins, Aðalsteinn Snæbjörnsson

13:40

Dragnótaveiðar í Skotlandi, Andrew Bremner

14:20

Umhverfisáhrif dragnóta, Hafró, Haraldur Einarsson

15:00

Markaðsverð á dragnótafiski sbr. annan veiðiskap, Fiskmarkaður Ísl. Gunnar Bergmannn Traustason

15:15

Kaffihlé

15:25

Stýrimannanám í Namebíu og möguleikar á drangnótaveiðum þar, NAMFI, Johnson Gurirab

15:45

Hópavinna og hringborðsumræður

17:00

Fundarslit

19:00

Dinner í Bláalóninu

Dagur 3

31.maí.08

Opið hús í veiðarfærastofu og líkön skoðuð í tilraunatanki.  Kl. 10:00 - 14:00

Stjórnendur ráðstefnunnar áskilja sér rétt til að breyta dagskránni fyrirvaralítið ef þörf krefur.

Næsti >

Fréttaskot

Aðalfundur Samtaka dragnótamanna 29/11/08 haldinn að Hótel Park-inn Reykjavík